Wolfang heldur með Forsetanum. Það fer ekki á milli mála að Davíð Oddson ætlaði sér að verða Forseti í staðinn fyrir Forsetann. Wolfang kom í veg fyrir þessa óskund með því að greiða Forsetanum atkvæði sitt og er það eins og menn vita, 10.000 manna atkvæði. Seðlabankastjórasjálfskipunin var bara neyðar úrræði og var reyndar ekkert gamann að vera þar, fannst honum. Allskonar fólk að skipta sér að og kvarta yfir óáran og skuldum vikum og mánuðum saman. Nei! Forsetaembættið hefði átt betur við Davíð og frú þar sem stórt tún er á Bessastöðum og hægt að halda útifundi með skrílnum og skammast út í hann fyrir að heimta brauð og vatn. Þetta veit Wolfang.
Wolfang
13. mars 2009
|
Eyjólfur Jónsson |
Bloggarar |
Engin ummæli
Já, Forsetinn!! Hann er og verður okkar Forseti þangað til annar verður kosinn Forseti. Þangað til á að sýna Forsetanum þá virðingu sem Forsetanum ber og ekki koma með allskonar glósum um Víkinga og þotur og svoleiðis rugl. Það er ekki sæmandi fyrir þegna Forsetanns að fara eftir áróðri einhverra sjálfstæðismanna út í bæ sem eru barasta fúlir yfir því að vera ekki Forsetar sjálfir eða að fá að halda í höndina á Dorrít. Öfund er það sem hrjáir þessa menn. Er nú þeirra tími farinn og kemur ekki aftur fyrr en þeir byðjast afsökunar og borga fyrir beiggluna í skjaldarmerki Forsetanns og hanns trúnu þegnahópi sem Wolfang tilheyrir og mun alltaf tilheyra!!
Wolfang
9. mars 2009
|
Eyjólfur Jónsson |
Bloggarar |
Engin ummæli