Wolfang bankastjóri?
Wolfang hætti sem bankastjóri í haust og fór til útlanda. Vegna margra áskorana frá Wolfangs-ættinni hefur hann ákveðið að skipa sjálfan sig sem sjálfsagðan arftaka Gamla Wolfangs. Er þá Wolfang líka saklaus og skuldlaus með skjannahvíta pappíra frá sjálfum sér og milku hærra kaup ofan á starfsloka-launin sem voru bara 899 miljónir sem er varla fyrir mjólk og fær þessvegna aðrar 898 míljónir í startpening frá Nýja Bankanum og annan jeppa (í þetta sinn Mússó Túrbó dísil). Hefur Wolfang skipað einn úr ættinni til að rannsaka af hverju Wolfang fór til útlanda í haust og ekki bara til Hveragerðis. Verður þess vegna Hveragerðingum kennt um alltsaman og rannsakaðir líka af Wolfangs-ættinni.